Zoo beach club er strandbar sem við fórum á í fríinu okkar síðasta haust,
og mig langar til að deila með ykkur núna,
þegar sumarið lætur bíða eftir sér hér heima og ástvinir senda mér myndir úr sólarlandaferð sinni.
Ég læt hugann reika til hlýrra minninga úr mínu fríi og nú fáum við okkur bjór og smárétti samam í sól og hita og ómótstæðilegri fegurð allt í kring.
Zoo beach club á fb
barinn er við ströndina á Llored de mar á Spáni,
og er svo skemmtilega innréttaður, allar innréttingar úr veðruðum við og fullt af skemmtilegum vintage dóti og hlutum útum allt, og allstaðar var allt í réttu litunum: matseðillinn, leirtauið og jafnvel öskubakkarnir... allt fittaði vel inn og gladdi augað.
Myndirnar sem ég tók eru margar enda allt svo fallegt og heillandi, vonandi njótið þið með mér
Þið getið fundið Zoo beach club á fb
og á ströndinni á Lloret de Mar að sjálfsögðu
.
Þið sem eruð í sólarlanda ferð; njótið vel
þið hin sem eruð hér heima; harkið bara af ykkur
kær kveðja
Stína Sæm
og á ströndinni á Lloret de Mar að sjálfsögðu
.
Þið sem eruð í sólarlanda ferð; njótið vel
þið hin sem eruð hér heima; harkið bara af ykkur
kær kveðja
Stína Sæm